17. febrúar, 2026
Fréttir

Þann 12. Febrúar síðastliðinn hélt Félagsmiðstöðin Óðal sína árlegu söngvakeppni.
Það má segja að undirbúningur hennar hafi að nokkru leyti hafist í nóvember því þá var unnið í því að endurnýja og uppfæra allan ljósabúnað ásamt hljóðbúnaði að nokkru leyti.
Ljósabúnaðurinn í húsinu var orðinn freka bágborinn eða hreinlega ónýtur. Nú er Félagsmiðstöðin Óðal orðin nokkuð sjálfbær hvað þennan búnað snertir og eru nú allir möguleikar á að geta haldið uppi tónleikum hvort það sé með einu hljóðfæri eða stærri hljómsveit mögulegir.

Jón Þór Sigmundsson, forstöðumaður Óðals sagði að kvöldið hafi heppnast einstaklega vel en við gefum honum orðið;
,,Í ár tóku sjö keppendur þátt, fimm keppendur frá GBF á Kleppjárnsreykjum og tveir frá GB.
Lögin í ár voru mjög fjölbreytt og skemmtileg og óhætt er að segja að vinna dómnefndarinnar hafi verið strembin því keppnin var virkilega jöfn, allir keppendurnir sungu gríðarlega vel og lögðu
metnað í atriðin.
Að þessu sinni sátu í dómnefndinni Örvar Bessason, Sigga Dóra Sigurgeirsdóttir, Þórarinn Torfi Finnbogason og Edda María Jónsdóttir.
Það var mikil spenna þegar dómararnir ásamt öllum keppendum stigu aftur á sviðið í lok keppninnar til þess að kynna úrslitin.
Bjartasta vonin var hún Bergdís Ingunn Einarsdóttir 8. bekk GBF sem söng lagið Stúlkansem starir á hafið. Dómararnir sögðu að hún hafi fallega rödd sem hentaði þessu lagi frábærlega og hún hafi verið að byggja upp lagið allan tímann.
Í öðru sæti varð Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir 9. bekk GBF sem söng lagið Clockwork. En þess má geta að annað sætið gefur einnig þátttökurétt á Söngvakeppni Samvest þann 5. Mars nk.
Dómararnir sögðu um hana að hún syngi gríðarlega vel og hafi valið lag sem hentar henni mjög vel og að það væri hljómur í rödd hennar sem heillar.
Sigurvegari Söngvakeppni Óðals árið 2026 var Guðrún Katrín Sveinsdóttir 10. Bekk GB sem söng lagið Open arms.
Dómararnir sögðu um hana að hún hafi mjög gott vald á röddinni, hafi fallegan og silkimjúkan tón ásamt því að hafa lifað sig inn í lagið, þá hafi hún geislað á sviðinu.

Dómnefndin talaði með hvatningarorðum til allra þátttakenda og hvatti þau til að halda áfram að syngja og taka þátt að ári liðnu, þau sem ættu möguleika á því.

Á Söngvakeppni Óðals komu einnig fram þau Guðbrandur Örn Úlfarsson sem spilaði á gítar og
munnhörpu ásamt því að syngja þrjú frumsamin lög. Sigurvegarar Söngvakeppni Menntaskóla Borgarfjarðar eða IceGuys next generation eins og þeir kalla sig komu óvænt inn á sviðið sem leyni atriði og gerðu það með miklum krafti.
Í ár eru nákvæmlega 30 ár síðan Sonja Lind sigraði Samfés keppnina sem í dag heitir Söngvakeppni Samfés og af því tilefni steig hún á svið og rifjaði upp gamla takta. Hún réðst ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur og söng power ballöðuna Total eclipse of the heart. Það er óhætt að segja að hún sýnt frábæra takta, mætti glæsileg á sviðið, klædd glimmer kjól og full sjálfstrausts.
Ekki má gleyma þeim sem tóku að sér að vera kynnar á keppninni, þau Ásdís Vera, Tryggvi, Stefán og Freyja stóðu sig gríðarlega vel út og voru vel æfð.
Starfsfólk Óðals vill þakka öllum keppendum, kynnum og þeim krökkum sem hjálpuðu til við undirbúning Söngvakeppni Óðals og frágang eftir keppnina.
Tæknimaðurinn okkar hann Auðunn Scott sá um glæsilega ljósasýningu og að hljóð væri í bestu gæðum.
Takk Guðbrandur, Ernir, Þorsteinn Logi, Kristján karl og Sonja fyrir að hjálpa okkur að gera frábært kvöld.“

Guðrún Katrín, sigurvegari Söngvakeppni Óðals 2026

Guðrún Katrín, sigurvegari Söngvakeppni Óðals 2026

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í öðru sæti varð Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir 9. bekk GBF

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bergdís Ingunn Einarsdóttir 8. bekk GBF var valin bjartasta vonin

 

 

 

 

 

 

 

 

Sigurvegarar Söngvakeppni Menntaskóla Borgarfjarðar eða IceGuys next generation eins og þeir kalla sig komu óvænt inn á sviðið sem leynigestir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sonja Lind rifjaði upp gamla takta

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.