Uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi: snemmtæk íhlutun í leikskólum Borgarbyggðar var haldinn í Hjálmakletti síðastliðinn fimmtudag í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins.
Allir leikskólarnir í Borgarbyggð tóku þátt í verkefninu og var það unnið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Á árinu hafa leikskólarnir því rýnt í málörvunarstarfið sitt, unnið að skýrara verklagi og sett niðurstöður vinnunnar í handbækur sem eiga síðan að styðja við áframhaldandi þróunarstarf.
Á uppskeruhátíðinni voru handbækurnar og annað efni sem varð til í þróunarvinnunni til sýnis. Þar tóku þau Baldur Rafn og Kristbjörg, ungir og efnilegir fyrrum nemendur leikskólanna, lagið við mikla hrifningu viðstaddra. Við lok hátíðarinnar afhenti starfsfólk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu leikskólunum bókagjafir með þökkum fyrir samstarfið og árnaðaróskum um áframhaldandi öflugt starf í þágu mál- og læsisþróunar barna í Borgarbyggð.
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
