Yfirkjörstjórn mun þá taka á móti framboðslistum á skrifstofu Borgarbyggðar að Digranesgötu 2, 1. hæð milli kl. 10.00 og 12.00. Meðmælendalistum skal skilað í gegnum rafrænt meðmælakerfi á www.island.is og/eða á pappír.
Yfirkjörstjórn boðar einnig til fundar mánudaginn 13. apríl n.k. kl. 13.00 á skrifstofu Borgarbyggðar, Digranesgötu 4, 3. hæð þar sem hún úrskurðar um framkomna framboðslista að viðstöddum umboðsmönnum listanna.
Þegar yfirkjörstjórn hefur úrskurðað um framboðin mun hún auglýsa framboðslista, bókstaf listanna og nöfn frambjóðenda á hverjum lista í réttri röð, á heimasíðu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og í bæjarblöðunum.
Frekari upplýsingar um sveitarstjórnarkostningar má finna hér.
Yfirkjörstjórn Borgarbyggðar og Skorradalshrepps,
Sveinbjörn Eyjólfsson
Sóley Sigurþórsdóttir
Jökull Helgason
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
