roofing
Fréttir og tilkynningar
16. febrúar, 2026
Fréttir
Söfnun á rúlluplasti fer fram nú í lok vikunnar (12.-20. janúar) og áfram í byrjun næstu viku.
Bændur eru beðnir um að hafa plastið vel til reiðu og aðgengilegt þannig að hægt sé að sækja það fljótt og örugglega.
Mikilvægt varðandi söfnun núna
- Bændur skulu tryggja að plastið sé snyrtilega frá gengið.
- Aðeins má skila rúlluplasti – ekki öðru plasti, neti eða öðru efni.
Næstu fyrirhuguðu plastsafnanir 2026
Eftir söfnunina í þessari og næstu viku verða næstu söfnunartímabil sem hér segir:
- 20.–30. apríl
- 6.–10. júlí
- 7.–11. september
- 9.–13. nóvember
Mikilvægt um söfnun á þessum dögum
Eftir þessa fyrstu söfnun er gerð krafa um litaflokkun í framhaldinu.
Það þýðir að:
- Halda þarf öllum litum aðskildum.
- Plast skal vera vel hreinsað og snyrtilega frá gengið.
- Ekki má skila plasti í pokum.
- Aðeins er tekið á móti rúlluplasti.
- Ekki er sótt plast sem er í lausu eða í gámum.
Borgarbyggð hvetur bændur til að fylgja þessum reglum svo söfnunin gangi sem greiðast.
Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir
Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
