Minningardagskrá í tilefni þess að 90 ár voru liðin frá hinu hörmulega strandi Pourquoi Pas? fór fram í gær og tókst afar vel. Mikill fjöldi fólks kom saman í Straumfirði, Safnahúsi Borgarfjarðar, Lyngbrekku og á Sögulofti Landnámsseturs Íslands til að minnast skipsins, áhafnarinnar og þeirra sem tengdust þessum örlagaríka atburði.
Dagskráin var unnin í samstarfi Borgarbyggðar, Franska sendiráðsins á Íslandi, landeigenda í Straumfirði, SSV og Landnámsseturs Íslands.
Dagskráin hófst með opnun örsýningar um Pourquoi Pas? í Safnahúsi Borgarfjarðar, nemendur við Grunnskólann í Borgarnesi stilltu einnig upp sýningu þar sem listaverk þeirra, tengd slysinu, voru til sýnis.
Síðdegis fór svo fram dagskrá í Félagsheimilinu Lyngbrekku undir yfirskriftinni „Minni Mýramanna: Pourquoi Pas? og samfélagið“. Þar var sýnt viðtal Ómars Ragnarssonar við Ingibjörgu Friðgeirsdóttur frá Hofsstöðum um atburðinn, auk kvikmynda af flaki skipsins við Hnokkan.
Trausti Jónsson, veðurfræðingur, flutti einnig erindi þar sem hann fjallaði um veðrið þennan daginn. Sýning var á munum í einkaeigu heimafólks og Þóra Sif Svansdóttir flutti tónlistaratriði. Gestum bauðst svo að gæða sér á ljúffengum veitingum frá Kvenfélagi Álftaneshrepps.
Um kvöldið lauk dagskránni með erindi Illuga Jökulssonar á Sögulofti Landnámsseturs Íslands. Þar sagði Illugi hina dramatísku sögu strandsins með ríkulegum myndskreytingum.
Dagurinn var bæði fræðandi og áhrifamikill, þar sem sögur, ljósmyndir, kvikmyndir, munir og tónlist fléttuðust saman. Sérstaklega falleg og áhrifarík athöfn fór fram í Straumfirði þar sem afkomendur þeirra sem fórust vottuðu virðingu sína. Þar voru 41 rós fleytt á sjó en Eugène Gonidec, sá sem lifði slysið af var einnig heiðraður.
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
