23. ágúst, 2026
Fréttir
Í tilefni þess að nýtt fjölnota íþróttahús Borgarbyggðar verður formlega vígt er öllum boðið að koma og fagna þessum merka áfanga sveitarfélagsins, á miðvikudaginn 26. ágúst kl. 17:00.
Boðið verður upp á veitingar og skemmtilega dagskrá fyrir gesti, blöðrudýr, andlitsmálning, fjölbreyttar íþróttastöðvar og margt fleira. Gestum gefst því kostur á að prófa fjölbreytta hreyfingu og kynna sér þá möguleika sem nýja húsið hefur upp á að bjóða.
Við hlökkum til að fagna þessum mikilvæga áfanga með íbúum og öðrum gestum

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.