Íþróttir, heilsuefling og lýðheilsa – opinn íbúafundur með framboðum

Opinn íbúafundur um málefni íþróttastarfs, heilsueflingar og almennrar lýðheilsu í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps verður haldinn í grunnskólanum í Borgarnesi þriðjudaginn 5. maí kl 20:00. Öll framboð til sveitarstjórnar í þessu sameinaða sveitarfélagi hafa boðað komu sína og mun forystufólk þeirra taka þátt í pallborðsumræðum um þessi mál.
Ef þú hefur áhuga á íþróttastarfi barna og fullorðinna á svæðinu, hefur skoðun á opnunartímum sundlauga, lagningu göngustíga, umhirðu útivistarsvæða í eigu sveitarfélaganna tveggja, sem nú eru að sameinast, eða einhverju öðru sem tengist yfirskrift fundarins hvetjum við þig eindregið til að mæta og taka þátt í samtalinu.
Byrjar: 05.05.2026, 20:00
Endar: 05.05.2026, 22:00
Grunnskólinn í Borgarnesi
Enginn aðgangseyrir