Huldur syngur í Borgarneskirkju

Huldur syngur í Borgarneskirkju

Kammerkórinn Huldur býður alla hjartanlega velkomna á tónleika í Borgarneskirkju þann 17. maí næstkomandi klukkan 14:00.
Á tónleikunum verður flutt ný íslensk kórtónlist af fyrsta hljómdisk kórsins í bland við önnur vel valin verk. Diskurinn, sem ber yfirskriftina ‘Í fossgljúfri’, hefur að geyma hinn draumkennda íslenska sagnaheim. Þar bregður fyrir tröllum, afturgöngum, afskornum tám og andlitum á glugga; álfareiðum, reiðum álfum og ástum manna og álfa á milli. Meginþorri dagskrárinnar samanstendur af verkum eftir ung tónskáld en einnig munu hljóma perlur eftir þjóðþekkt tónskáld, m.a. Huga Guðmundsson, Snorra Sigfús Birgisson og Hauk Tómasson.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð kórsins í tilefni útgáfu hljómdisksins. Ferðin hefst í Stykkishólmi 14. maí. Síðan heldur kórinn norður og heldur tónleika í Akureyrarkirkju föstudaginn 15. maí. Þá eru tónleikar í Borgarneskirkju 17. maí og loks eru það sjálfir útgáfutónleikarnir, nær heimahögunum, í Langholtskirkju laugardaginn 23. maí.

🎉 Við hvetjum ykkur að koma og hlýða á nýja tóna! Hlökkum til að sjá sem flesta! 🎉

🧌UM KÓRINN🧝‍♀️:
Kammerkórinn Huldur var stofnaður af Hreiðari Inga Þorsteinssyni haustið 2021. Á skammri ævi hefur kórinn haldið fjölda tónleika, að jafnaði ferna á ári, og frumflutt hátt í fimmtíu ný íslensk kórverk. Hann hefur einnig verið dýrmætur vettvangur fyrir ungt fólk til að spreyta sig á tónsmíðum, ljóðagerð, einsöng og kórstjórn. Huldur hefur komið fram á ýmsum hátíðum: Unglist, Hátíðni á Borðeyri, kammertónlistarhátíðinni Seiglu, Óperudögum, Sönghátíð í Hafnarborg, Myrkum músíkdögum og Ungkórahátíð Evrópu (EJCF) sem haldin er annað hvert ár í Basel. Kórinn hefur einnig unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og stigið á kórpalla með Graduale Nobili, Ægisif, Kór Hallgrímskirkju, Dómkórnum og svo vitaskuld Kór Menntaskólans við Hamrahlíð.
En þetta nafn, hvað á það að þýða? Huldurin er kynjavera úr íslenskri þjóðtrú sem dvelur í fossum, lækjum eða jafnvel á hafsbotni og merkir nafnið ‘hin hulda’. Vætturin er mönnum frekar til meins en gagns. Ein slík frásögn finnst í þjóðsagnasafni Ólafs Davíðssonar. Þar eru munnmæli frá Rangárvallasýslu að menn tryðu að vættur, huldurin, byggi bak við fossa. Móðir sögumanns trúði því að huldur tæki menn sem væru úti seint á kvöldin við fossinn í Tjörvastaðalæk sem rennur í Ytri-Rangá. Sama trú á huldir í fossum var á Seljalandsfossi og austur í Skaftafellssýslu. Eflaust fannst þessi þjóðtrú víðar um land enda hefur vætturin verið yrkisefni margra íslenskra skálda í gegnum tíðina. Þar má nefna tvö ljóð sem koma fyrir á disknum, þ.e. Huldur eftir Grím Thomsen og Bláir eru dalir þínir eftir Hannes Pétursson. Hjá Grími dvelur hún djúpt í hafi og knýr öldur fram með langspili, fiðlu og söng. Í ljóði Hannesar um dalina bláu má hins vegar finna huldina í fossgljúfrinu líkt og í þjóðtrúnni. Þar greypir hún sólarljósið sjálft í vatnsdropa fossins – „saumar sólargull í silfurfestar vatnsdropanna“.

Dagsetning:

Byrjar: 17.05.2026, 14:00
Endar: 17.05.2026, 15:00

Staðsetning:

Borgarneskirkja

Verð:

Almennt miðaverð: 2900