Bókmenntaganga á vegum Safnahúss Borgarfjarðar

Læsi á stöðu og baráttu kvenna er samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi og Kvennaárs og er ætlað að vekja athygli á þróun kvenréttinda.
Laugardaginn 16. maí kl. 11:15 verður því boðið upp á að fara í „Bókmenntagöngu“. Mæting er í Safnahúsið og genginn verður stuttur hringur í nágrenninu og endað aftur í Safnahúsi. Á völdum stöðum verður staldrað við og lesnir stuttir kaflar úr sögum eða ljóðum eftir konur, sem tengjast áningarstöðunum.
Tvær konur úr Ferðafélagi Borgarfjarðar munu leiða gönguna og finnst það alveg tilvalið að bregða sér í bókmenntagöngu áður en farið er á kjörstað.
Dagsetning:
Byrjar: 16.05.2026, 11:15
Endar: 16.05.2026, 12:15
Staðsetning:
Safnahús Borgarfjarðar
Verð:
Frítt