Val, notkun og viðhald keðjusagnar – inngangur í trjáfellingar

Í fræðilegum hluta námskeiðsins verður farið yfir grundvallaratriði um val á réttri sög, hvaða búnað þarf til að viðhalda söginni, tryggja öryggi við fellingar og hvernig best er að þjónusta og hirða sögina.
Í verklega hlutanum verður farið yfir einfalda trjáfellingartækni og sýnt hvernig best er að ganga frá greinum og bol eftir fellingu. Kennsla fer fram sem sýnikennsla og taka þátttakendur ekki virkan þátt í verklegum æfingum.
Kennari leggur til allan búnað og efni sem notað er í námskeiðinu. Þátttakendur þurfa því ekki að koma með eigin keðjusög eða annan búnað.
Aldurstakmörk þátttakenda eru 16 ár.
Sérstök áhersla er lögð á öryggi og rétta umgengni við keðjusög.
Kennari Pavle Estrajher
Kennt laugardaginn 12.september kl. 10-15 með hádegishléi. ATHUGIÐ að það verður sýnileiki í Einkunnum eftir hádegi.
Byrjar: 12.09.2026, 10:00
Endar: 12.09.2026, 15:00
Símenntun og Einkunnir
22500